Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar

Háþýrstingur

Heim
Stjórn
Um FÁSL
Lög
Fréttir
Fyrri fundir
Rannsóknir í heilbrigðissögu
Hlekkir
Söguhorn

Jón Steffensen

Íslensk lækningahandrit og prentaðir lækningatextar frá 1600–1800 Valin dæmi
Örn Hrafnkelsson, sagnfræðingur. Nánar

Í handritadeild Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns eru varðveitt lækningahandrit frá 16., 17. og 18. öld. Þessi handrit eru með textum eftir Íslendinga og útlendinga og er hluti af hefð sem tíðkaðist hér á landi. Erlendis var texti af þessum toga vanalega prentaður, en hér á landi var honum miðlað í handritum. Textarnir eru bæði af kyni alþýðulækninga og raunlækninga, og allflestir eiga það sammerkt að vera þýddir og staðfærðir fyrir íslenskar aðstæður. Þessir lækningatextar voru „lifandi“ og varðveittir í mörgum handritum. Þegar fram liðu stundir þá týndist höfundurinn, eða nokkrir höfundar urðu að einum, og þýðandinn varð að höfundi eða skrifarinn. Í sumum tilfellum, gerðist það að höfundur textans og hinn upprunalegi höfundur gleymdust. Má einnig líta á það sem dæmi um vinsældir eða not þessara texta að þeir hafa varðveist í mörgum uppskriftum, og að sami textinn er varðveittur í handritum allt frá 16. öld til loka þeirrar 18. Í fyrirlestrinum verða rakin valin dæmi og reynt að varpa ljósi á þessa þróun sem er um margt sérstök.

Örn Hrafnkelsson er forstöðumaður handritadeildar Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Örn lauk MPA prófi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands í október 2006 og MA prófi í sagnfræði frá sama skóla 1998.