Árið 1858 var Gray’s
anatomy gefin fyrst út í Bretlandi og fagnar því 150 ára
afmæli með sinni fertugustu útgáfu. Bókin
er kennd við höfundinn Henry Gray en þó hún
sé talin eitt þekktasta ritverk í læknisfræði
hefur lítið verið vitað um höfundinn. Í fyrirlestrinum
verður saga bókarinnar rakin og reynt að varpa ljósi á hver
Henry Gray var.
Viðtal við Hannes Pedersen Læknablaðið
2008/94, 844-845.
Bókasýning
Sýning á Gray´s Anatomy bókum úr Nesstofusafni
og úr sérsafni Jóns Steffensen sem varðveitt
er í Þjóðarbókhlöðunni.
Gestir eru hvattir til að koma með eigið eintak af Gray´s
Anatomy og leggja á sýningarborð.
Eftir fyrirlesturinn gefst fundargestum kostur á að skoða
bækurnar og þiggja léttar veitingar að hætti
Jóns Steffensen.
|