Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar

Heim
Stjórn
Um FÁSL
Lög
Fréttir
Fyrri fundir
Rannsóknir í heilbrigðissögu
Hlekkir
Söguhorn

Jón Steffensen


Allmargar rannsóknir um barnadauða í fátækum ríkjum nútímans hafa leitt í ljós að menntun kvenna og félagsleg réttindi þeirra hafa afgerandi áhrif á lífslíkur lítilla barna. Nokkrir fræðimenn hafa fært fyrir því rök að þessir þættir vegi þyngra en efnahagslegar og félagslegar aðstæður. Í þessari ritgerð verður sjónum beint að þeirri miklu lækkun ungbarnadauða sem varð á Íslandi á síðari hluta 19. aldar og fyrstu áratugum þeirrar 20. Færð verða fyrir því rök að aukið læsi meðal kvenna, fjölgun menntaðra ljósmæðra og lenging ljósmæðranáms hafi átt sinn þátt í þeirri miklu lækkun ungbarnadauðans sem varð hér á umræddu tímabili.