Lækningaminjasafn í Nesi
- Fortíð og framtíð
Læknafélag Íslands
og Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar
halda ráðstefnu á Háskólatorgi
Háskóla Íslands
Laugardagur 27. september 2008 kl 9.00 -13.00
Á gömlum merg: Fundarstjóri: Atli Þór Ólason
formaður FÁSL
9:00 Setning: Sigurbjörn
Sveinsson, læknir og fulltrúi LÍ í safnstjórn
9:10 Í mjúku
moldarskauti – Fornleifar í Nesi: Adolf
Friðriksson, Fornleifastofnun Íslands (féll
niður).
Í fyrirlestrinum verður gefið almennt yfirlit yfir fornleifarannsóknir í Nesi.
Fjallað verður um vitnisburð fornleifafræðinnar um upphaf
og þróun byggðar á staðnum.
9:40 Læknirinn í Nesi:
Jón Ólafur Ísberg,
sagnfræðingur
Á árunum 1763-1834 var Nes við Seltjörn embættisbústaður
landlæknis og þar bjuggu og störfuðu flestir þeir
sem gegnu embættinu á þessum tíma. Landlæknir
var yfirmaður heilbrigðismála og jafnframt læknir landsmanna,fyrst
allra en síðan að hluta. Hvað gerði læknirinn í Nesi
og var einhver árangur af starfi hans?
10:10 Jarðneskar
lækningaminjar frá Nesi: Guðmundur Ólafsson,
fagstjóri fornleifa Þjóðminjasafni Íslands
Margir áhugaverðir gripir hafa fundist við fornleifarannsóknir
sem farið hafa fram við Nesstofu á undanförnum árum.
Einkum gripir sem tengjast starfsemi landlæknis í Nesstofu
og þá sérstaklega apótekinu
sem þar var starfrækt um tíma. Í erindinu
verður gerð grein fyrir ýmsum lækningaminjum
em þarna hafa komið úr jörðu
og hafa líklega tilheyrt þessu elsta apóteki
landsins.
10:30 Kaffihlé
Lækningaminjasafn: Fundarstjóri:
Birna Jónsdóttir formaður Læknafélags Íslands
11:00 Saga
lækningaminjasöfnunar á Íslandi: Kristinn
Magnússon, deildarstjóri Fornleifavernd ríkisins
Árið 1992 var opnuð sýning í Nesstofu á Seltjarnarnesi á völdum
gripum úr Nesstofusafni. Gripum tengdum sögu læknisfræðinnar
hafði þá verið safnað skipulega í nær
30 ár. Rakin verður saga þessarar söfnunar og gerð grein
fyrirþætti einstaklinga, félagasamtaka og stofnana í uppbyggingu
lækningaminjsafns á Íslandi.
11:20 Hlutverk
safna í samtímanum. Söfnin vettvangur
allra í nútímanum: Margrét
Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður
Í fyrirlestrinum mun ég fjalla um hlutverk safna í samfélagi
okkar og samtíð. Hvernig söfn geta tekið geta og jafnvel
hafa nú þegar tekið við því hlutverki
að vera hlutlaus vettvangur umræðu samtímans, brú milli
tímabila og brú milli sögu, lista og nýsköpunar.
Einnig mun ég velta fyrir mér hvar mörkin eigi að liggja þegar
kemur að hinni samfélagslegu ábyrgð safna. Hvenær á safn
að vera hlutlaus vettvangur og hvenær er við hæfi að vera
virkur þátttakandi umræðunnar? Hvernig getur safn styrk
samfélag sitt með starfi sínu? Getur safn aukið lífsgæði
gesta sinna? Fjallað verður um reynslu Þjóðminjasafns Íslands á þessu
sviði.
11:35 Lækningaminjasafn Íslands.
Hvert skal stefna? Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir,
safnstjóri
Lækningaminjasafn Íslands er miðstöð safnastarfsemi á sviði
lækna- og heilbrigðisvísinda. Hlutverk
safnsins er stórt og því þarf
að sinna af kostgæfni. Að mörgu er að hyggja þegar
stefna safnsins er mótuð. Gerð verður
grein fyrir þeim hugmyndum sem uppi eru og um leið er
spurt: Hvert skal stefnt?
12:00 Panelumræður um stefnumótun og áherslur safnsins og stöðu þess í íslensku
safnaumhverfi.
Ragnheiður Þórarinsdóttir
sérfræðingur, Menntamálaráðuneyti.
Kristín
Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands.
Þórólfur Þórlindsson,
forstjóri Lýðheilsustöðvar.
Sunneva Hafsteinsdóttir, bæjarfulltrúi Seltjarnarnesbæjar.
Óttar
Guðmundsson, formaður nefndar LÍ um málefni lækningaminjasafns í Nesi. |
Ráðstefnan
er öllum opin og aðgangur ókeypis.
|