Heim
Stjórn
Um FÁSL
Lög
Fréttir
Fyrri fundir
Rannsóknir í heilbrigðissögu
Hlekkir
Söguhorn
Jón Steffensen |
Frá árinu 1804 bar starfandi læknum á Íslandi að skrifa ársskýrslu og senda til landlæknis. Í þessum skýrslum svöruðu þeir ákveðnum spurningum varðandi heilbrigði manna en þar eru líka skráðar helstu kvartandir þeirra varðandi ástand mála á því svæði sem þeir störfuðu. Í þessum heimildum sést hver voru helstu verkefni þeirra og þegar leið á 19. öld hvert var umfang starfsemi þeirra.
Þórunn Guðmundsdóttir (f. 1950).
Hún lauk röntgentæknaprófi frá Röntgentæknaskóla Íslands 1974 og starfaði sem röntgentæknir til 1987. Lauk meistaraprófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands 2003 og fékk Styrk Jóns Steffenssen 2001 til rannsókna á menntun og störfum ljósmæðra á 18. öld en það var hluti af meistaraprófsverkefni hennar. Þórunn starfaði á hjá Íslenskri erfðagreiningu frá 1999-2006 við rannsóknir á 18. aldar félags-og fjölskyldusögu. Hún er stjórnarmaður í Sagnfræðingafélagi Íslands.
|