LÖG FÉLAGS ÁHUGAMANNA
UM SÖGU LÆKNISFRÆÐINNAR
1. gr.
Félagið heitir Félag áhugamanna
um sögu læknisfræðinnar (Icelandic
Society for Medical History). Heimili þess er í Reykjavík.
2. gr.
Tilgangur félagsins er að efla þekkingu á sögu
læknisfræðinnar með hverjum þeim
ráðum, er þjóna því sjónarmiði,
s.s. með því að styðja rannsóknir á sögu
læknisfræðinnar, útgáfu rita
og varðveislu minja um sögu læknisfræðinnar
3. gr.
Í félaginu skulu haldnir fundir svo oft
sem verkefni gefast. Stjórn félagsins boðar
félagsfundi að jafnaði með viku fyrirvara.
4. gr.
Stjórn félagsins skipa fimm menn, formaður,
ritari, féhirðir og tveir meðstjórnendur.
Skulu þeir kosnir á aðalfundi til þriggja ára.
Ennfremur skal kjósa tvo endurskoðendur til þriggja ára.
5. gr.
Stjórnin annast allar framkvæmdir félagsins, þær
er félagsfundur hefur eigi ráðstafað á annan
veg.
6. gr.
Félagsfundur kýs heiðursfélaga
og bréfafélaga, samkvæmt einróma
tilnefningu félagsstjórnar.
7. gr.
Á félagsfundum má ekki gera ályktun
um neitt félagsmálefni, sem eigi hefur verið greint á skriflegu
fundarboði, nema því aðeins að á fundi
séu meira en helmingur atkvæðisbærra
félagsmanna.
Atkvæðisbærir félagar eru þeir,
er eigi skulda félagsgjöld fyrir meira en eitt ár.
8. gr.
Aðalfundur skal haldinn árlega að jafnaði í marsmánuði. Á honum
skulu þessi mál tekin til meðferðar:
Stjórnin leggur fram reikninga félagsins
og skýrir frá störfum þess síðastliðið starfsár.
Kosning stjórnar og endurskoðenda.
Ákvörðun félagsgjalda.
Önnur mál.
9. gr.
Lögum þessum má eigi breyta án
samþykkis aðalfundar. |