Yfir
200 félagar skráðir
Nú eru yfir 200 félagar skráðir í Félag áhugamanna
um sögu læknisfræðinnar. Margir
nýjir félagar bættust í hópinn á Læknadögum í janúar
2005 og á ráðstefnu um Jón
Steffensen í febrúar. Stjórnin
býður þá velkomna í hópinn.
Sýnir þetta betur en annað vaxandi áhuga á sögu
læknisfræðinnar og á starfi
félagsins meðal lækna og annarra heilbrigðisstétta. Þessi áhugi
byggist að nokkru á almennum áhuga á sögu á Íslandi
sem er að líkindum meiri en í mörgum öðrum
löndum. En einnig á aukinni meðvitund
sérgreinafélaga á sögu eigin
greinar.
Fjölgun meðlima:
Núverandi stjórn hefur
kappkostað við fjölga vikrum félögum í félaginu.
Send voru út nokkur bréf til allra
starfandi lækna á landinu og nokkurra
fleiri þar sem vakin var athygli á félaginu
og starfi þess. Undirtektir voru með miklum ágætum
og tókst okkur margfalda félagafjöldann á nokkrum
vikum. Nú eru um 100 manns í félaginu
sem verður að teljast gott. Meðalaldur
félagsmanna hefur lækkað verulega
við þessa fjölgun sem sýnir
að unglæknar hafa áhuga á fleiru
en raunvísindum og efnishyggju útímans.
Af heimasíðu Seltjarnarnesbæjar:
Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi,
menntamálaráðherra, Anna Guðný Ásgeirsdóttir
fjármálastjóri Þjóðminjasafns Íslands
fyrir hönd Þjóðminjavarðar
og formenn Læknafélags Íslands
og Læknafélags Reykjavíkur hafa
undritað samning um byggingu og rekstur húsnæðis
fyrir Lækningaminjasafn Íslands og aðra
menningartengda starfsemi. Samkvæmt samninginum
tekur Seltjarnarnesbær að sér og
ber ábyrgð á að reist verði
ný safnbygging fyrir Lækningaminjasafn Íslands á safnasvæðinu
við Nesstofu samkvæmt gildandi aðalskipulagi
Seltjarnarness. Í því felst meðal
annars að Seltjarnarnesbær sér alfarið um
og ber ábyrgð á öllum kostnaðarþáttum
vegna framkvæmdarinnar.
Kostnaður við bygginguna er áætlaður
345 milljónir króna, auk kostnaðar
við lóð sem Seltjarnarnes leggur til
samningsaðilum að kostnaðarlausu. Samkvæmt
samningnum mun Seltjarnarnes leggja til 110 milljónir
króna auk lóðar undir safnið og
Læknafélag Íslands leggur til
50 milljónir króna. Menntamálaráðuneytið greiðir
75 milljónir króna en að auki rennur
söluandvirði fasteignarinnar Bygggarða
7 á Seltjarnarnesi i framkvæmdina. Bygggarðar
7 voru keyptir fyrir erfðafé Jóns
Steffensen, prófessors emeritus, sem arfleiddi
Læknafélag Íslands að tilteknum
eignum og fjármunum í erfðaskrá sinni.
Læknafélagið færði Þjóðminjasafninu
arfinn til umsjónar og hefur fjármununum
verið varið til endurbóta á Bygggörðum
7 til hagsbóta fyrir Nesstofusafn.
Seltjarnarnesbær mun taka að sér
og bera ábyrgð á framkvæmdum
við safnabygginguna sem mun verða um 1300
fermetrar að stærð og verður reist
samkvæmt teikningum Yrkis arkitekta ehf. sem
liggja fyrir. Teikningarnar hlutu fyrstu verðlaun í opinni
hönnunarsamkeppni sem fram fór árið 1997.
Samkvæmt samningnum er gert ráð fyrir
að safnið verði risið og fullfrágengið haustið 2009
en það verður staðsett í nágrenni
við Nesstofu og starfrækt í tengslum
við hana. Samningurinn er gerður með fyrirvara
um skipulagslega meðferð málsins á grundvelli
skipulags- og byggingarlaga.
Seltjarnarnesbær mun annast rekstur og stjórn
Lækningaminjasafns Íslands þegar
starfsemi þess hefst í nýju húsnæði.
Við safnið mun starfa sérstök
safnnefnd. Henni er ætlað að vera safnstjóra
til aðstoðar við skipulag og áætlanir
um sýningarhald, varðveislu og rannsóknir á vegum
safnsins. Í safnnefnd Lækningaminjasafns Ísland
munu sitja tveir einstaklingar tilnefndir af Læknafélagi Íslands,
einn af Þjóðminjasafni ásamt
tveimur fulltrúum Seltjarnarnesbæjar
og skal annar þeirra vera formaður Stefnt
er að því að stjórn safnsins
hefji störf eigi síðar en 1. nóvember
2007.
Safnið mun starfa sem stofnun á vegum
bæjarfélagsins og verður það miðstöð safnastarfsemi á sviði
lækna- og heilbrigðisvísinda auk þess
að bera ábyrgð á söfnun,
varðveislu, rannsóknum og miðlun á þeim
munum og minjum sem snerta sögu lækninga á Íslandi.
Byggingin mun að auki nýtast undir aðra
menningartengda starfssemi Seltjarnarnesbæjar.
|