Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar

Fréttir

Heim
Stjórn
Um FÁSL
Lög
Fréttir
Dagskrá funda
Rannsóknir í heilbrigðissögu
Hlekkir

Ritstjóri
Vefstjori

 

Yfir 200 félagar skráðir
Nú eru yfir 200 félagar skráðir í Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar. Margir nýjir félagar bættust í hópinn á Læknadögum í janúar 2005 og á ráðstefnu um Jón Steffensen í febrúar. Stjórnin býður þá velkomna í hópinn. Sýnir þetta betur en annað vaxandi áhuga á sögu læknisfræðinnar og á starfi félagsins meðal lækna og annarra heilbrigðisstétta. Þessi áhugi byggist að nokkru á almennum áhuga á sögu á Íslandi sem er að líkindum meiri en í mörgum öðrum löndum. En einnig á aukinni meðvitund sérgreinafélaga á sögu eigin greinar.

Fjölgun meðlima:

Núverandi stjórn hefur kappkostað við fjölga vikrum félögum í félaginu. Send voru út nokkur bréf til allra starfandi lækna á landinu og nokkurra fleiri þar sem vakin var athygli á félaginu og starfi þess. Undirtektir voru með miklum ágætum og tókst okkur margfalda félagafjöldann á nokkrum vikum. Nú eru um 100 manns í félaginu sem verður að teljast gott. Meðalaldur félagsmanna hefur lækkað verulega við þessa fjölgun sem sýnir að unglæknar hafa áhuga á fleiru en raunvísindum og efnishyggju útímans.


Af heimasíðu Seltjarnarnesbæjar:
Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi, menntamálaráðherra, Anna Guðný Ásgeirsdóttir fjármálastjóri Þjóðminjasafns Íslands fyrir hönd Þjóðminjavarðar og formenn Læknafélags Íslands og Læknafélags Reykjavíkur hafa undritað samning um byggingu og rekstur húsnæðis fyrir Lækningaminjasafn Íslands og aðra menningartengda starfsemi. Samkvæmt samninginum tekur Seltjarnarnesbær að sér og ber ábyrgð á að reist verði ný safnbygging fyrir Lækningaminjasafn Íslands á safnasvæðinu við Nesstofu samkvæmt gildandi aðalskipulagi Seltjarnarness. Í því felst meðal annars að Seltjarnarnesbær sér alfarið um og ber ábyrgð á öllum kostnaðarþáttum vegna framkvæmdarinnar.

Kostnaður við bygginguna er áætlaður 345 milljónir króna, auk kostnaðar við lóð sem Seltjarnarnes leggur til samningsaðilum að kostnaðarlausu. Samkvæmt samningnum mun Seltjarnarnes leggja til 110 milljónir króna auk lóðar undir safnið og Læknafélag Íslands leggur til 50 milljónir króna. Menntamálaráðuneytið greiðir 75 milljónir króna en að auki rennur söluandvirði fasteignarinnar Bygggarða 7 á Seltjarnarnesi i framkvæmdina. Bygggarðar 7 voru keyptir fyrir erfðafé Jóns Steffensen, prófessors emeritus, sem arfleiddi Læknafélag Íslands að tilteknum eignum og fjármunum í erfðaskrá sinni. Læknafélagið færði Þjóðminjasafninu arfinn til umsjónar og hefur fjármununum verið varið til endurbóta á Bygggörðum 7 til hagsbóta fyrir Nesstofusafn.

Seltjarnarnesbær mun taka að sér og bera ábyrgð á framkvæmdum við safnabygginguna sem mun verða um 1300 fermetrar að stærð og verður reist samkvæmt teikningum Yrkis arkitekta ehf. sem liggja fyrir. Teikningarnar hlutu fyrstu verðlaun í opinni hönnunarsamkeppni sem fram fór árið 1997. Samkvæmt samningnum er gert ráð fyrir að safnið verði risið og fullfrágengið haustið 2009 en það verður staðsett í nágrenni við Nesstofu og starfrækt í tengslum við hana. Samningurinn er gerður með fyrirvara um skipulagslega meðferð málsins á grundvelli skipulags- og byggingarlaga.

Seltjarnarnesbær mun annast rekstur og stjórn Lækningaminjasafns Íslands þegar starfsemi þess hefst í nýju húsnæði. Við safnið mun starfa sérstök safnnefnd. Henni er ætlað að vera safnstjóra til aðstoðar við skipulag og áætlanir um sýningarhald, varðveislu og rannsóknir á vegum safnsins. Í safnnefnd Lækningaminjasafns Ísland munu sitja tveir einstaklingar tilnefndir af Læknafélagi Íslands, einn af Þjóðminjasafni ásamt tveimur fulltrúum Seltjarnarnesbæjar og skal annar þeirra vera formaður Stefnt er að því að stjórn safnsins hefji störf eigi síðar en 1. nóvember 2007.

Safnið mun starfa sem stofnun á vegum bæjarfélagsins og verður það miðstöð safnastarfsemi á sviði lækna- og heilbrigðisvísinda auk þess að bera ábyrgð á söfnun, varðveislu, rannsóknum og miðlun á þeim munum og minjum sem snerta sögu lækninga á Íslandi. Byggingin mun að auki nýtast undir aðra menningartengda starfssemi Seltjarnarnesbæjar.



Aðalfundur Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar verður haldinn laugardaginn 4. mars 2006 kl 11.00 í Hringsal á Barnaspítala Hringsins, Landspítala- háskólasjúkrahúsi.

Dagskrá
Hefðbundin aðalfundarstörf
- gjaldkeri leggur fram reikninga félagsins
- formaður flytur skýrslu stjórnar
- kosning stjórnar
- ákvörðun félagsgjalda
- önnur mál

Fyrirlestur
Steinunn Kristjánsdóttir, phil.dr.
Lækningar í Águstínusarklaustrinu á Skriðu í Fljótsdal
Niðurstöður fornleifarannsóknar

Eftir fjögurra ára fornleifarannsókn á rústum Skriðuklausturs eru híbýli þess, sem og margþætt hlutverk, mjög að skýrast. Bygging klaustursins samanstóð af þyrpingu vistarvera, kapellu og veglegri kirkju sem stóðu við skýrt afmarkaðan klausturgarð. Byggingin var áþekk öðrum kaþólskum klausturbyggingum erlendis, líkt og hlutverk þess einnig, en í Skriðuklaustri fór fram bókfells- og blekgerð, samhliða ritun bóka og skjala, auk ræktunar mat- og lækningajurta. Þar var jafnframt rekið hospital og stundaðar lækningar. Í erindinu verður fjallað um framgang rannsóknarinnar, um leið og greint verður frá helstu niðurstöðum úr henni.

Steinunn Kristjánsdóttir (f. 1965).
Lauk doktorsprófi í fornleifafræði við Háskólann í Gautaborg árið 2004. Starfar nú sem verkefnastjóri Skriðuklaustursrannsókna sem hýstar eru á Þjóðminjasafni Íslands. Er formaður Fornleifafræðingafélags Íslands og á sæti í Fornleifanefnd.

Stjórnin

Ráðstefna:

Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar mun gangast fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um sögu læknisfræðinnar í Háskóla Íslands í ágústmánuði 2005. Við viljum beina öllum þeim sem áhuga af á þessari ráðstefnu á slóðina sem er á heimasíðu okkar. Það er trú okkar að þetta verði bæði skemmtilegir og fræðandi dagar og viljum hvetja sem flesta til að taka þessa daga frá nú þegar í dagbókinni sinni.

Saga læknisfræðinnar á hádegisverðarfundi á Læknadögum
mánudaginn 16.1.06, kl 12:00 á Hótel Nordica
Baðmenning og baðlækningar til forna
Jón Þorsteinsson, gigtarlæknir

Umsjón: Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar

 
Aðalfundur Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar verður haldinn laugardaginn 3. apríl 2004 kl 11.00 í Lyfjafræðisafninu við Neströð á Seltjarnarnesi.

Dagskrá

Hefðbundin aðalfundarstörf
- gjaldkeri leggur fram reikninga félagsins
- formaður flytur skýrslu stjórnar
- ákvörðun félagsgjalda
- önnur mál

Fyrirlestur
"Var Svarti dauði fuglaflensa?"
- Deilur vísindamanna um orsakir og eðli miðaldaplágunnar á Íslandi og í Evrópu: Stefán Pálsson, sagnfæðingur

Fræðslufundar laugardaginn 26. nóvember 2005 kl. 11:00
í Hringsal á Barnaspítala Hringsins,  Landspítala- háskólasjúkrahúsi.

Jón Ólafur Ísberg sagnfræðingur flytur fyrirlestur:
Kreppan í heilbrigðisskýrslum

Fyrirlesturinn er opinn öllum áhugamönnum um efnið.

Að fundi loknum eru kaffiveitingar í boði Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar.

Ráðstefna um Jón Steffensen

Dagana 18. og 19. febrúar 2005 verður haldin ráðstefna til minningar um aldarafmæli Jóns Steffensen í Þjóðarbókhlöðunni. Hún hefst föstudaginn 18. febrúar kl 15.30. Henni verður fram haldið á laugardaginn 19. febrúar með fyrirlestrum frá kl 9.00 til 17.00. Haldnir verða rúmlega tuttugu fyrirlestrar um margvísleg áhugaverð efni sem á einn og annan hátt tengjast persónu Jóns, ævistarfi hans eða skyldum viðfangsefnum.
Jón stofnaði Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar og kom á fót Nesstofusafninu.
Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar hefur tekið virkan þátt í undirbúningi ráðstefnunnar.

Framlag félagsins verður:

Laugardaginn 19. febrúar, kl 9.00 - 10.20. - Fundarstjóri: Atli Þór Ólason.

Kristinn Magnússon:

Um forystu Jóns í söfnun og varðveislu muna og minja.

Halldór Baldursson:

Endurlífgun um 1800

Óttar Guðmundsson:

Jón Steffensen í heimi Íslendingasagna og lögbóka.

Laugardaginn 19. febrúar, kl 15.50

Haraldur Briem:

Umfjöllun prófessors Jóns Steffensen um farsóttir á fyrri öldum

Stjórnin vill eindregið hvetja félagsmenn til að mæta á ráðstefnuna og njóta þess efnis sem boðið er upp á. Hér gefst einstakt tækifæri til að kynnast nýju efni um sögu læknisfræðinnar á Íslandi.

Frekari upplýsingar hér...