2006
Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar í samvinnu við Félag íslenskra heimilislækna
boðar til fræðslufundar fimmtudaginn 26. október 2006 kl 20:00
í Hringssal Barnaspítala Landsspítala.
Héraðslæknar og saga
Haukur Valdimarsson heimilislæknir: Síðulæknar
Árið 1875 urðu þáttaskil í heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Læknaskóli var settur á stofn og sett voru lög um læknishéruð sem fólu í sér verulega fjölgun þeirra. Vestur-Skaftafellssýsla varð samkvæmt lögunum sérstakt læknishérað. Áður, eða frá 1760, gegndu landlæknir og síðar læknar í austurhluta suðuramtsins héraðinu. Suðuramtslæknar sátu yfirleitt í Rangárvallasýslu. Undantekning frá því var þegar Sveinn Pálsson læknir gegndi Sunnlendingum frá Vík í Mýrdal á árunum 1809-1834. Sigurður Ólafsson var fyrsti Síðulæknirinn. Hann gegndi héraðinu árin 1876-1882. Nokkrir læknanna helguðu héraðinu starfsæfina. Saga heilbrigðisþjónustunnar á þessum tíma og síðan langt fram á síðustu öld er saga héraðslæknanna. Heilbrigðisskýrslur frá þessum tíma gefa til kynna hvar skóinn helst kreppti í heilsufari héraðsbúa sem og annarra landsmanna.
Kristrún Hall Helgadóttir, sagnfræðingur:
Nýskipan læknis í Ólafsvík og baráttan við háa dánartíðni ungbarna
Um aldamótin 1900 fjölgaði læknishéruðum á Íslandi úr sjö í 42 en fjölgunin hafði mikla breytingu í för með sér. Hér verður sjónum beint að Nesþingum, sjávarplássunum á utanverðu Snæfellsnesi. Héraðið var að heita má læknislaust allt fram til ársins 1892 er læknir var skipaður með búsetu í Ólafsvík. Í Nesþingum reyndist dánartíðni ungbarna ein sú hæsta á landinu langt fram eftir 19. öld en var komin niður fyrir landsmeðaltal árið 1910. Hvers vegna var dánartíðni ungbarna jafn há og raun ber vitni og hvað olli undraverðri niðursveiflu hennar? Höfðu eldishættir bein áhrif á dánartíðni ungbarna eða var um samspil fleiri þátta að ræða og hverju breytti skipan læknis í héraðið?
Eftir fundinn er boðið upp á kaffi
Fyrirlesturinn er opinn öllum áhugamönnum um efnið.
Egils Snorrasonar fyrirlesturinn 2006
“The paradigm shift in scientific methodology and in medical ethics after The Second World War
– a self-experienced near-history”
Fyrirlesari: Professor Povl Riis
DR. MED. HC. FRCP
læknir Danmörk
Fyrirlesturinn verður haldinn í Hringssal Barnaspítala Landsspítala
laugardaginn 1.apríl kl.11.00
og er öllum opinn. Fyrirlesturinn er fluttur á ensku.
Professor Povl Riis er íslenskum læknum að góðu kunnur fyrir fjölda námskeiða og erinda um læknisfræði, tölfræði, siðfræði o.fl. sem hann hefur haldið á Islandi. Hann hefur heimsótt Ísland 50 sinnum.
Að fundi loknum eru kaffiveitingar í boði Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar.
2005
Fræðslufundar laugardaginn 26. nóvember 2005 kl. 11:00
í Hringsal á Barnaspítala Hringsins, Landspítala- háskólasjúkrahúsi.
Jón Ólafur Ísberg sagnfræðingur flytur fyrirlestur:
Kreppan í heilbrigðisskýrslum
Fyrirlesturinn er opinn öllum áhugamönnum um efnið.
Að fundi loknum eru kaffiveitingar í boði Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar.
Ráðstefna
Menning og meinsemdir: rýnt í bein, farsóttir, læknisfræði og lýðsögu Íslendinga 18. og 19. febrúar 2005
15. febrúar 2005 er liðin öld frá fæðingu Jóns Steffensen prófessors við læknadeild Háskóla Íslands. Af því tilefni verður efnt til málþings föstudaginn 18. og laugardaginn 19. febrúar í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni . Auk starfa í þágu læknadeildar var Jón brautryðjandi í líffræðilegri mannfræði og rannsóknum á mannabeinum. Jón skrifaði margt um sögu heilbrigðismála, m.a. faraldsfræði og hafði forgöngu um að stofna Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar árið 1964. Hann rýndi einnig í forna texta með nýjum hætti. Málþingið endurspeglar fjölbreytt viðfangsefni Jóns. Gestafyrirlesari er Andy Cliff, prófessor í landafræði við University of Cambridge. Hann hefur m.a. unnið að faraldsfræðilegum rannsóknum á Íslandi. Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Háskóli Íslands standa að málþinginu
Sýning til heiðurs Jóni Steffensen og konu hans Kristínar Björnsdóttur verður opnuð í Landsbókasafni föstudaginn 18. febrúar og er henni ætlað að sýna í máli og myndum frá starfi, einkalífi og áhugamálum þeirra. Auk bóka og handrita prýða margir skemmtilegir munir og myndir sýninguna. Þjóðminjasafn Íslands lánar gripi sem tengjast mannfræðirannsóknum Jóns, en hann sá um rannsóknir á mannabeinum fyrir Þjóðminjasafnið og liggja eftir hann merk ritverk á því sviði.
Föstudagur 18. febrúar 2005
15.30 Setning málþings.
Hrafnkell Helgason: Um ævi Jóns og störf hans.
Sigurbjörn Sveinsson: Varðveisla íslenskrar læknareynslu
Andy Cliff: Contexts and Epidemic Emergence
Abstract
This paper outlines some of the principal drivers at the global scale which lead to the emergence of new and the re-emergence of old scourges at different spatial and temporal locations. These drivers include level of economic development, population growth and shifts, land use changes, climate change, travel, and war. While examples will be drawn from many geographical locations, especial attention will be given to the 1783-4 Laki Craters eruption and its impact upon mortality in England as an illustration of the demographic impact of climate change.
Sigrún Klara Hannesdóttir opnar sýninguna
Laugardagur 19. febrúar 2005
09.00-10.20
Hannes Blöndal: Líffærafræði , þá og nú.
Kristinn Magnússon: Um forystu Jóns í söfnun og varðveislu muna og minja.
Halldór Baldursson: Endurlífgun um 1800.
Óttar Guðmundsson: Jón Steffensen í heimi Íslendingasagna og lögbóka.
10.40-12.00
Jón Karl Helgason: Bein Jóns Arasonar.
Gísli Pálsson: Íslendinganýlenda við Harvard: Beinasafn Vilhjálms Stefánssonar.
Margaret Jean Cormack: Læknirinn og dýrlingurinn.
Gavin Lucas: Archaeology and Anonymity. Reflections on Jóns Steffensen's osteonymy.
Matarhlé
13.00 – 14.10
Hildur Gestsdóttir: Fornmeinafræðileg rannsókn á slitgigt á Íslandi.
Guðný Zoëga: Keldudalur – kirkjugarður úr frumkristni.
Svend Richter og Sigfús Þór Elíasson: Rannsókn á höfuðkúpum, kjálkum og tönnum mannleifa frá Skeljastöðum.
Sigfús Þór Elíasson og Svend Richter: Slit og eyðing tanna í fólki til forna.
14.30 – 15.30Agnar Helgason: Landfræðileg lagskipting á erfðamengi Íslendinga
Birna Jónsdóttir: tölvusneiðmyndarannsóknir á múmíum.
Kristján Mímisson: Formfræðilegur skyldleiki elstu nútímamanna í Kína
15.50 –16.50
Haraldur Briem: Umfjöllun prófessors Jóns Steffensen um farsóttir á fyrri öldum
Elín Hirst: Bólusótt til forna – sérstaða Íslands.
Már Jónsson: Bóludauðatal Árna Magnússonar í meðförum Jóns Steffensen
Tómas Zoëga slítur málþinginu.
11. febrúar 2004
Jón Steffensenar fyrirlestur í Hringsal, Barnaspítala
Hringsins, LSH
Ófrjósemisaðgerðir á Íslandi árin
1938-1975 skv. lögum 16/1938 eða eins og í þeim
segir: "Að heimila, í viðeigandi tilfellum,
aðgerðir til að koma í veg fyrir að fólk
auki kyn sitt"
Fyrirlesari kvöldsins er Unnur Birna Karlsdóttir sagnfræðingur.
Unnur Birna hlaut styrk er veittur er af Félagi áhugamanna
um sögu lækninsfræðinnar og Þjóðminjasafni Íslands
við gerð þessarar rannsóknar. Styrkurinn, sem er
kenndur við prófessor Jón Steffensen, er ætlaður
til að vinna að rannsóknum á sögu læknisfræðinnar.
2004
Aðalfundur Félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar verður haldinn laugardaginn 3. apríl 2004 kl 11.00 í Lyfjafræðisafninu við Neströð á Seltjarnarnesi.
Dagskrá
Hefðbundin aðalfundarstörf
- gjaldkeri leggur fram reikninga félagsins
- formaður flytur skýrslu stjórnar
- ákvörðun félagsgjalda
- önnur mál
Fyrirlestur
"Var Svarti dauði fuglaflensa?" - Deilur vísindamanna um orsakir og eðli miðaldaplágunnar á Íslandi og í Evrópu: Stefán Pálsson, sagnfæðingur
Dagskrá funda starfsárið 2003
30. apríl 2003
Jón Steffensenar fyrirlestur miðvikudaginn 30. apríl 2003 í Lyfjafræðisafninu
við Neströð á Seltjarnarnesi.
Nesstofa og landlæknar fyrri tíma
Fyrirlesari: Kolbrún Ingólfsdóttir sagnfræðingur
Kolbrún hlaut styrk þann er kenndur er við prófessor
Jón Steffensen til að vinna að rannsóknum á þessu
efni. Á eftir fyrirlestri Kolbrúnar fræddi Heimir Þorleifsson
sagnfræðingur fundarmenn enn frekar um sögu Seltjarnarness.
29. nóvember 2003
Egils Snorrasonar fyrirlesturinn 29. nóvember 2003 í Hringssal,
Barnaspítala Hringsins, LSH
Saga fyrirbyggjandi læknisfræði, með áherslu á reynslu Þjóðverja
og Norður Evrópubúa.
Fyrirlesari: Peter Nilssen, aðstoðarprófessor. Peter
Nilsson er aðstoðarprófessor í lyflæknisfræði
við háskólann í Lundi og Málmey. Hann
hefur stundað klínískar rannsóknir á háþrýstingi
og sykursýki um árabil. Hann hefur auk þess haft
mikinn áhuga á sögu læknisfræðinnar
og rannsakað sögu fyrirbyggjandi læknisfræði
og almennrar heilsugæslu.
|